Íslenski boltinn

Arnar í tveggja leikja bann

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Arnar verður ekki á hliðarlínunni í næstu tveimur leikjum Vals.
Arnar verður ekki á hliðarlínunni í næstu tveimur leikjum Vals. vísi/hulda margrét

Aga- og úrskurðarnefnd Knattspyrnusambands Íslands hefur dæmt Arnar Grétarsson, þjálfara Vals í Bestu deild karla í tveggja leikja bann.

Arnar fékk að líta rauða spjaldið þegar hans menn unnu 3-2 útisigur á Breiðabliki í stórleik 5. umferðar Bestu deildarinnar. Adam Ægir Pálsson fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt snemma í síðari hálfleik. Arnar var ekki sáttur með ákvörðun dómara leiksins og var skömmu síðar einnig rekinn af velli. 

Þegar hér var komið við sögu var Valur með 2-1 forystu en Gylfi Þór Sigurðsson skoraði þriðja mark Vals beint úr aukaspyrnu ekki löngu síðar og þó Blikar hafi minnkað muninn í 3-2 þá héldu Valsarar út. 

„Mér fannst við skapa mun hættulegri færi en Blikarnir og ég er bara ánægður að sigla þessu heim eftir að lenda í enn einum leiknum þar sem er verið henda okkur út af fyrir litlar sakir. Mér finnst í rauninni ótrúlegt að þessir fjórðu dómarar séu farnir að stjórna leikjum. Þetta er gjörsamlega galið,“ sagði Arnar í viðtali við Vísi eftir leik. 

Hann hélt svo áfram: „Þjálfari Breiðabliks er að biðja um að fá gult spjald á Adam Ægi og er mjög aggressívur við Gunnar [Odd Hafliðason, fjórða dómara]. Adam á einhver orðaskipti við þá og segir þeim í rauninni að hætta þessu fokking rugli og fyrir það fær hann gult spjald. Hvert erum við komin? Hvað eru þeir að gera? Er þetta í lagi sem þeir eru að gera?“ 

Arnar á hliðarlínunni í sumar.Vísir/diego

„Mér finnst þetta orðið algjört rugl hvert þetta er komið. Þessi spjaldalæti sem eru í gangi. Við erum búnir að fá að kynnast því á móti Stjörnunni og svo aftur hér og mér finnst þetta rosalega litlar sakir. Menn verða að átta sig á því að þarna eru orðaskipti við þjálfara Breiðabliks, sem eru mjög aggressívir. Ég hélt að það mætti bara einn standa á hliðarlínunni, en þeir eru tveir, og það er ekkert gert í því. Þeir komust upp með að æsa leikmann upp og hann segir eitthvað við þá og það er nóg til að fá gult spjald. Hvert erum við komin? Fyrir mér er þetta algjört rugl,“ sagði Arnar að lokum.

Í Stúkunni að 5. umferð lokinni var farið yfir spjaldasöfnun Arnars Grétarssonar og nafna hans Arnars Gunnlaugssonar, þjálfara Íslands- og bikarmeistara Víkinga. Standa þeir nafnar upp úr þegar kemur að spjaldasöfnun þjálfara í Bestu deildinni.

„Ég get skilið að menn séu reiðir og sýni tilfinningar, en þú getur gert það kurteisislega samt sem áður. Þú verður að ráða við sjálfan þig,“ sagði Gummi Ben í Stúkunni og vísaði til Arnars Grétarssonar þjálfara. 

Frá og með sumrinu 2019 hefur Arnar Grétarsson alls fengið 10 gul spjöld og þrjú rauð. Nú er hann á leið í tveggja leikja bann og missir því af leikjum Vals gegn sínum fyrverandi lærisveinum í KA og svo gegn HK í Kórnum.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

„Arnar fór langt yfir strikið“ en nafni hans oftar með dónaskap

Arnar Grétarsson, þjálfari Vals, fór „langt yfir strikið“ í reiðikasti sínu á Kópavogsvelli í gærkvöld en á nokkuð í land með að ná nafna sínum Arnari Gunnlaugssyni, þjálfara Víkings, sem er „langgrófasti þjálfarinn“ í Bestu deildinni í fótbolta.

Adam hundfúll og Arnar beint í símann

Stöð 2 Sport náði myndum af því þegar þeir Adam Ægir Pálsson og Arnar Grétarsson mættu í búningsklefann á Kópavogsvelli í kjölfarið af því að þeim hafði báðum verið sýndur reisupassinn í leik Vals við Breiðablik.

„Segir þeim að hætta þessu fokking rugli“

Arnar Grétarsson, þjálfari Vals, gat leyft sér að fagna þrátt fyrir að hafa fengið að líta rautt spjald gegn Breiðabliki í kvöld. Hans menn unnu sterkan 3-2 sigur þrátt fyrir að spila stærstan hluta seinni hálfleiks manni færri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×